Karellen
news

Fréttir af okkur

15. 11. 2020

Vikan á Höfðavík hefur gengið mjög vel. Við höfum verið í Hópastarfi og reynum að fara út alltaf allavega einu sinni á dag. Nú er orðið rosalega kallt úti sérstaklega á morgnanna og viljum við því ítreka hlý og góð föt og svo er fínt að vera með vettlinga til skiptana. Þá vill ég einnig minna foreldra á að fylgjast með aukafata boxinu og bæta í þau þegar vantar. :)

Það kom upp njálgur á deildinni og því er mikilvægt að allir fylgist með sínu barni næstu daga.

Að lokum viljum við þakka ykkur kærlega fyrir að virða grímuskylduna og jákvæðina á þessum tímum, pössum upp á okkur og hvort annað :)

Kveðja stelpurnar á Höfðavík

© 2016 - 2024 Karellen