Karellen
news

Samstarf Kirkjugerðis og Hraunbúða

09. 11. 2023

Undanfarin ár hafa nemendur í Kirkjugerði farið aðra hvora viku í heimsókn á Hraunbúðir þar sem þau hafa spjallað, leikið og sungið með heimilisfólki sem og fólkinu sem kemur í dagdvölina.

Í dag fór hópur nemenda og tók við veglegri gjöf frá dagdvölinni, en fólkið þar hefur saumað poka með útsaumi á og fyllt þá af heimaprjónuðum vettlingum. Hún Ragnheiður afhenti þeim einn poka fyrir hverja deild, flokkað eftir stærð <3

Við þökkum Hraunbúðum kærlega fyrir rausnarlega gjöf sem mun nýtast vel í vetur <3


© 2016 - 2024 Karellen