Karellen
news

María Rós er ný sumarafleysing

16. 05. 2018

María Rós Arngrímsdóttir starfar hjá okkur sem afleysing nú í sumar.
María Rós er með Bachelor gráðu í Talmeinafræði frá Auburn University í Montgomery. Meðan hún stundaði nám sitt þar tók hún tveggja ára starfsnám þar sem að hún var með sína eigin skjólstæðinga í talkennslu. María er í námi í Háskóla Íslands á haustin þar sem hún vinnur að meistaragráðu í talmeinafræði ásamt því að starfa á leikskólanum Álftaborg með skóla.

Við bjóðum hana velkomna til okkar hér á Kirkjugerði.

© 2016 - 2024 Karellen