Heil og sæl kæru foreldrar <3
Þá er enn ein vikan liðin hjá okkur í Klettsvík og að venju var hún skemmtileg og uppfull af alls kyns verkefnum.
Á miðvikudaginn héldum við upp á afmæli elsku Maí-barnanna okkar með ÁvaxtaAfmælisSamveruBombu :-) Innilega til hamingju með afmælin ykkar elsku Elvar Aron, Inga Lind, Rúnar Vignir og Valli <3
Því miður þurfum við að fresta vorsýningunni okkar sem vera átti næsta þriðjudag, 18.maí, vegna Covid og fjöldatakmarkana en vonandi gefst tækifæri síðar. En örvæntum ekki, Eurovision byrjar á þriðjudaginn og við gleðjumst yfir því :-)
Hjartans þakkir fyrir yndislega viku og njótið helgarinnar sem aldrei fyrr :-)
Emma,Gíslný, Heba, Dísa, Lóa, Ragna og Sigga <3