Allt starfsfólk Kirkjugerðis sat skyndihjálparnámskeið dagana 7. og 8. september þar sem Hildur Vattness Kristjánsdóttir hjúkrunarfræðingur fór yfir grunnþættina í skyndihjálp og var áhersla lögð á skyndihjálp barna.
Farið var yfir endurlífgun fullorðinna og barna og allir spreyttu sig í að hnoða sem gekk alveg ljómandi vel.