Elskulegu foreldrar
Á mánudaginn fara leikskólar bæjarins að fullum krafti af stað, ný börn eru að hefja skólagöngu sína á Sóla og Kirkjugerði og 5 ára börnin okkar kveðja og hefja nám á Víkinni. Við lifum nú við breyttar aðstæður þar sem einstaklingar sem voru gestkomandi í Vestmannaeyjum sl. helgi hafa greinst með staðfest smit af COVID-19. 48 einstaklingar sem búsettir eru í Vestmannaeyjum eru þegar komnir í sóttkví en enginn er í einangrun (upplýsingar af vef Vestmannaeyjabæjar) Við þurfum því að fara mjög gætilega í leikskólunum. Í ljósi þessara aðstæðna sem hér hefur verið farið yfir viljum við ítreka eftirfarandi þætti:
Meginregla okkar næstu vikurnar verður að taka á móti börnunum úti og einnig að kveðja þau þar.
Verum meðvituð um eigin smitvarnir, sprittum hendur við komu í leikskólann, það eru sprittbrúsar í andyrum.
Berum virðingu fyrir 2 m reglunni, ef fleiri eru í fataklefa hinkra þá úti.
Aðeins 1 komi með barn og sæki það.
Ekki koma lengra en inn í fataherbergi og dvelja þar sem styst.
Verum vakandi fyrir flensueinkennum bæði hjá okkur og börnunum, ef foreldrar finna fyrir einkennum biðjum við að þau að komi ekki inn á leikskólann.
Verum skilningsrík, tillitssöm, kurteis og styðjum hvert annað.
Við munum gera okkar besta í því að sótthreinsa snertifleti og halda ykkur upplýstum.
https://www.vestmannaeyjar.is/mannlif/frettir/tilkynning-fra-adgerdastjorn-vestmannaeyja