Karellen
news

Vikan 3-7.maí

08. 05. 2021

Heil og sæl öllsömul, vonandi eruð þið að eiga geggjaða helgi :-)

Vikan sem var að líða var okkur góð á Klettsvík, alltaf skemmtilegt og upplífgandi að vera með krílunum okkar í leik og starfi. Við nutum útiverunnar sem aldrei fyrr en verðum að viðurkenna að okkur brá heldur í brún þegar gærdagurinn heilsaði okkur með snjó.....hann stoppaði sem betur fer stutt við og má bara koma aftur næsta vetur ;-)

Við höldum áfram að æfa Lubbahljóðin okkar og höfum verið að æfa ,,H" og munum halda því áfram eina viku í viðbót. Við vorum mikið að æfa okkur að klippa og líma í vakandi hvíldunum okkar og má með sanni segja að börnin okkar hafi kunnað að meta það og gaman að sjá framfarirnar hjá þeim.

Hjartans þakkir fyrir viðburðarríka viku og við hlökkum til að sjá ykkur hress og kát á mánudaginn :-)

© 2016 - 2024 Karellen