Karellen
news

Gleðilegt nýtt ár

10. 01. 2021

Kæru foreldrar.

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það liðna. Fyrsta vikan eftir jólafrí gekk mjög vel hjá okkur. Börnin eru flest öll komin aftur eftir gott frí og mjög ánægð að hitta vini sína.

Fjögur ný börn byrjuðu hjá okkur í vikunni og hefur aðlögunin gengið ljómandi vel. Þá fengum við einnig nýjan og ekki nýjan starfmann til okkar hana Huldu Sigríði Hilmarsdóttir en hún var einnig hjá okkur síðasta sumar.

Við erum spenntar fyrir komandi vetri og vonumst eftir að covid fari að láta okkur í friði.

kveðja

Stelpurnar á Höfðavík

© 2016 - 2024 Karellen