Karellen
news

Samvera með Prestinum

13. 02. 2018

  • Presturinn kemur í heimsókn til okkar mánaðarlega.. hann kom til okkar í gær, þriðjudag og tók samverustund með börnunum. Samveran skiptist í tvennt þar sem yngri börnin mæta fyrst og svo þau eldri.

Í samverustundum með prestinum syngur hann með börnunum lög úr sunnudagaskólanum, les sögur með fallegum boðskap og dregur svo fram hina svokölluðu "töfratösku" sem börnin bíða alltaf jafn spennt fyrir.
Virkilega notaleg stund hjá okkur og börnin til fyrirmyndar. Syngja með og hlusta af fullum áhuga.

Dásamlega Duglegu börnin okkar... <3

© 2016 - 2024 Karellen